Jólaskógarnir - jólatrjáasala skógræktarfélaganna |
Miðvikudagur, 02. desember 2009 15:15 |
Skógræktarfélög víða um land munu selja jólatré fyrir jólin í ár, eins og undanfarin ár. Það er öllum í hag að velja ferskt íslenskt jólatré af skógræktarfélögunum og styrkja með því skógræktarstarfið í landinu. Fyrir hvert selt jólatré geta skógræktarfélögin gróðursett 30-40 ný tré. Eftirfarandi skógræktarfélög eru með jólatrjáasölu nú fyrir jólin. Nánari upplýsingar eru á jólatrjáavef skógræktarfélaganna.
Skógræktarfélag Austurlands Eyjólfsstaðaskógi helgarnar 12.-13. og 19.-20. desember. Skógræktarfélag Austur-Húnvetninga Gunnfríðarstöðum laugardaginn 19. desember, en einnig verða seld jólatré að Fjósum í Svartárdal inn af Húnaveri. Skógræktarfélag Austur Skaftfellinga Haukafelli sunnudaginn 12. desember. Skógræktarfélag Árnesinga Snæfoksstöðum í Grímsnesi helgarnar 12.-13. og 19.-20. desember. Skógræktarfélag Borgarfjarðar Daníelslundi, í samvinnu við björgunarsveitir á félagssvæðinu, laugardaginn 12. desember og helgina 19.-20. desember. Skógræktarfélag Dýrafjarðar Skógræktarfélag Eyfirðinga Laugalandi á Þelamörk helgarnar 12.-13. og 19.-20. desember. Skógræktarfélag Eyrarsveitar Skógræktarfélag Garðabæjar Helgina 19.-20. desember í aðstöðu félagsins austan Vífilsstaða (við gatnamót Vífilsstaðavegar og Elliðavatnsvegar). Skógræktarfélag Hafnarfjarðar Selinu við Kaldárselsveg (Höfðaskógi) allar helgar fram að jólum. Skógræktarfélag Mosfellsbæjar Hamrahlíð við Vesturlandsveg frá 9. desember. Skógræktarfélag Rangæinga Bolholti sunnudagana 13. og 20. desember. Skógræktarfélag Reykjavíkur Jólamarkaði félagsins að Elliðavatni allar helgar fram að jólum og í Hjalladal í Heiðmörk helgarnar 12.-13. og 19.-20. desember. Skógræktarfélag Siglufjarðar Skógræktinni í Skarðsdal laugardaginn 5. desember. Skógræktarfélag Skagfirðinga Laugardaginn 12. desember í Hólaskógi og Varmahlíð. Skógræktarfélag Stykkishólms Skógræktarfélag Skilmannahrepps Furulundi (norðan í Akrafjalli) helgina 12.-13. desember. Skógræktarfélagið Mörk Reit skógræktarfélagsins í Stóra-Hvammi, Fossi á Síðu sunnudaginn 13. desember . Fossá í Hvalfirði - Skógræktarfélög Kópavogs, Mosfellsbæjar, Kjalarness og Kjósarhrepps Fossá í Hvalfirði allar helgar fram að jólum. Skógræktarfélag Íslands Brynjudal í Hvalfirði allar helgar fram að jólum - eingöngu bókaðir hópar.
|