Meistaravörn í skógfræði x 2 |
Föstudagur, 17. maí 2013 00:00 |
Föstudaginn 17. maí kl. 13.30-15.30 munu þær Else Møller og Lilja Magnúsdóttir verja meistararitgerðir sínar í skógfræði frá Landbúnaðarháskóla Íslands. Varnirnar verða í Borg í Ársal á Hvanneyri, Else frá 13.30-14.30 og Lilja frá 14.30-15.30. Boðið verður upp á kaffi í lok athafnar. Ritgerð Else heitir Hraðrækt jólatrjáa á ökrum - Áhrif mismunandi ræktunaraðferða á lifun og vöxt jólatrjáa á fyrstu vaxtarstigum. Aðalleiðbeinandi er Bjarni Diðrik Sigurðsson og meðleiðbeinendur þeir Brynjar Skúlason, Björn B. Jónsson og Claus Jerram Christensen. Nánar má lesa um varnirnar á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands (hér). |