Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar 2014 |
Fimmtudagur, 27. mars 2014 00:00 |
Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn í Hafnarborg, Strandgötu 34, fimmtudaginn 27. mars kl. 20.00. Að loknum venjulegum aðalfundarstöfum mun Björn Traustason sérfræðingur í landfræðilegum upplýsingakerfum hjá rannsóknarstöð skógræktarinnar á Mógilsá flytja erindi er nefnist „Skóglendi í umdæmi Hafnarfjarðar - núverandi staða og möguleg framtíðarsýn“. Félagið býður upp á kaffi í hléi. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar í síma: 555-6455 eða 894-1268. |