Skip to main content

Heiðmerkurhlaupið 25. september

25sep11:00Heiðmerkurhlaupið 25. septemberHeiðmerkurhlaupið verður haldið í annað sinn þann 25. september

Nánari upplýsingar um viðburð

Heiðmerkurhlaupið verður í annað sinn laugardaginn 25. september. Um 130 tóku þátt í fyrsta Heiðmerkurhlaupinu, 3. október í fyrra.

Hlaupið er skipulagt af Skógræktarfélagi Reykjavíkur í samstarfi við Náttúruhlaup í tilefni af því að 120 ár eru frá því að Skógræktarfélag Reykjavíkur var upphaflega stofnað, þann 25. ágúst 1901.

Með Heiðmerkurhlaupinu er fastagestum og nýjum áhugahlaupurum boðið að kynnast stígakerfinu og njóta þess að hlaupa í faðmi skógarins. Viðburðurinn er auglýstur með þeim fyrirvara að samfélagslegar aðstæður leyfi að hann verði haldinn.

Hægt er að skrá sig í 4 kílómetra skemmtiskokk eða Ríkishringinn, sem er 12 kílómetrar.

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla – og kvennaflokki, ásamt útdráttarverðlaunum. Verðlaunin eru jólatré frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur sem vinningshafar geta nálgast á Jólamarkaðnum í Heiðmörk.

Skráning í hlaupið er á hlaup.is þar sem einnig má finna nánari upplýsingar um hlaupið.

Sjá meira

Tímasetning

(Laugardagur) 11:00(GMT+00:00)