Skip to main content

Opinn skógur á Skógum undir Eyjafjöllum

Með 15. september, 2013febrúar 13th, 2019Fréttir frá skógræktarfélögum

Í tilefni af vígslu Völvuskógar á Skógum undir Eyjafjöllum sem ,,Opins skógar“  og  Degi íslenskrar náttúru þann 16. september, verður efnt til hátíðardagskrár sunnudaginn 15. september, kl. 14:00.

Dagskrá

Ávörp flytja:

Magnús Gunnarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands,
Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis– og auðlindaráðherra,
Ágúst Árnason, fulltrúi fyrrum nemenda Skógaskóla og
Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra

Boðið verður upp á ratleik og leiðsögn um skóginn, Viðarbandið spilar tónlist og boðið verður upp á veitingar.

Allir velkomnir!