Skógræktarfélag Íslands hefur um áratugaskeið staðið fyrir fræðsluferðum til annarra landa
Fyrstu áratugina var um svo kallaðar skiptiferðir að ræða, en þá fór hópur íslensks skógræktarfólks í heimsókn til Noregs til að kynna sér skóga og skógrækt þar og á móti kom norskur hópur til Íslands.
Undanfarna áratugi hafa ferðirnar hins vegar verið almennar kynnisferðir til að fræðast um skóga, náttúru og sögu viðkomandi lands, þótt áhersla sé að sjálfsögðu alltaf lögð á skóga og skógrækt. Hefur verið ferðast til Alaska (Bandaríkjanna), Alberta og Bresku-Kólumbíu (Kanada) Arkhangelsk (Rússlands), Austurríkis, Colorado (Bandaríkjanna), Danmerkur, Finnlands, Frakklands, Færeyja, Írlands, Ítalíu, Kamtsjatka (Rússlands), Króatíu, Marokkó, Noregs, Nýfundnalands (Kanada), Póllands, Spánar, Skotlands, Sviss og Þýskalands.
Ferðirnar hafa heppnast vel og verið vinsælar, enda oft farið á fáfarnari slóðir. Áhersla er lögð á að ferðirnar séu bæði skemmtilegar og fræðandi, en meginmarkmiðið er að fólk fái innsýn í skógrækt og fræðist um skóga, náttúru, sögu og menningu annarra landa.
Ferð ársins 2025 er til S-Svíþjóðar. Uppselt er í ferðina.
Hægt er að skrá sig á áhugalista fyrir ferð árins 2026 nú þegar (hvert verður farið kemur í ljós síðar) – hafið samband á skog@skog.is eða hringið í síma 551-1850.