Skip to main content

Skógarganga hjá Skógræktarfélagi Mosfellsbæjar 19. júní

Með 19. júní, 2012febrúar 13th, 2019Skógargöngur

Skógræktarfélag Mosfellsbæjar stendur fyrir skógargöngu um nýja stíginn í Æsustaðahlíð. Gott útsýni er yfir Mosfellsdalinn frá stígnum og ætlar Bjarki Bjarnason að fræða göngufólk um það sem fyrir augu ber. Mæting er við planið við kartöflugarðana í Skammadal og hefst gangan kl. 20:00.

Léttar veitingar verða að göngu lokinni.

Allir velkomnir.