Skógræktarfélag Reykjavíkur, í samstarfi við Ferðafélag Íslands, stendur fyrir skógargöngu fimmtudaginn 18. ágúst. Mæting er við Vífilsstaðavatn.
Gangan er hluti af gönguröð þriðja fimmtudag í mánuði yfir sumarmánuðina og fram á haust. Göngurnar eru í léttara lagi, 2-3 klukkutímar. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.
Fararstjórar eru þau Auður Kjartansdóttir framkvæmdastjóri Skógræktarfélagsins og Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélagsins.
Sjá nánar á heimasíðu Skógræktarfélags Reykjavíkur: www.heidmork.is