Skip to main content

Skógræktarfélag Íslands hefur um áratugaskeið staðið fyrir fræðsluferðum á erlenda grundu þar sem fléttað er saman fræðslu um skóga og skógrækt við almenna náttúru og menningu viðkomandi lands. Fyrirhugað er að fara Frakklands árið 2024, nánar til tekið til Normandí og Bretagneskagans. Ferðin verður farin dagana 28. september til 6. október. Flogið verður til og frá París og farið um á rútu. Að venju verður blandað saman fróðleik um og heimsóknum í skóga og almennum fróðleik um náttúru, sögu og menningu landsins. Meðal annars er fyrirhugað að fara til Mont Saint Michel, kíkja á bændamarkað í Paimpol, fræðast um eplarækt og síderframleiðslu, heimsækja skógarbónda og skoða garðinn í Versölum.

Hægt er að skrá sig á áhugalista fyrir ferðina, til að fá nánari upplýsingar um hana um leið og þær liggja fyrir. Hafið samband í síma 551-8150 eða á netfangið skog@skog.is.

Takmarkaður sætafjöldi er í ferðina. Í hana gildir, líkt og fyrri ferðir félagsins, að fyrstur kemur, fyrstur fær!