FURA
A-flokkur fyrir furu
Hæð
Mælist frá stofnenda – leggurinn nær þangað upp sem grein frá efsta greinakransi nær. Stærðarflokkar með 25 cm millibili, nema á minnstu trjánum og trjám stærri en 200 cm.
Hæðargreining:
- 70/100 cm
- 100/125 cm
- 125/150 cm
- 150/175 cm
- 175/200 cm
- 200/250 cm
- 250/300 cm
Leggur
Greinalaus u.þ.b. 20 cm.
Litur
- Tréð á að vera frísklegt, heilbrigt og hafa einsleitan lit, sem einkennir viðkomandi tegund.
- Allt að 5% nála trésins mega vera rauðar.
Form
- Breidd trésins á að vera 60-75% af hæð í hlutfalli hæðar og breiddar.
- Tréð þarf að vera samhverft og greinarnar jafn dreifðar í kringum stofninn.
- Hver greinakrans á að vera með að minnstu kosti fjórar greinar af svipaðri lengd.
- Tréð á að vera með að lágmarki 4 heilbrigða nálaárganga.
- Stofn trésins þarf að vera beinn með einn topp af sæmilegri lengd.
Þéttleiki
- Greinakransar eiga að vera jafnt dreifðir á trénu. Bil á milli greinakransa má ekki vera meira en 45 cm.
- Tré milli 100 og 150 cm á að hafa a.m.k. 4 greinakransa.
- Tré milli 150 og 200 cm á að hafa a.m.k. 5 greinakransa.
- Tré milli 200 og 300 cm á að hafa a.m.k. 6 greinakransa.
Skemmdir
- Á tré má vera að hámarki einn minniháttar galli ef það skemmir ekki heildarútlitið og tréð er frísklegt, heilbrigt og með góðan lit.
- Það mega ekki vera dauðar eða brotnar greinar.
- Það má ekki vera gras, mosi, mold eða skemmdur börkur.
- Barrið á að vera jafnt dreift og full þroskað.
- Barrið má ekki bera merki eftir skordýr.
- Formun og klipping á söluári skilgreinist sem galli.
- Tréð má ekki liggja úti á foldinni meira en 15 daga eftir högg.
B-flokkur fyrir furu
Hæð
Tré í B-flokki er flokkað með 50 cm millibili.
- 100-150 cm
- 150-200 cm
- 200-250 cm
Litur
- Tré sem er mislitt eða breytilegt á litinn vegna streitu, veikinda, næringarskorts, veðurfarsáhrifa eða annars.
- Allt að 5% nála trésins mega vera rauð.
Form
- Breidd trésins er minni en 60% eða meira en 85% í hlutfalli hæðar og breiddar.
- Tré þar sem stofninn er ekki í miðju trésins.
- Tré með stuttan, beygðan eða á annan hátt gallaðan topp.
- Tréð er ekki samhverft og greinarnar ekki jafndreifðar í kringum stofninn.
Þéttleiki
- Tré milli 100 og 150 cm hefur bara 3 greinakransa.
- Tré milli 150 og 200 cm hefur bara 4 greinakransa.
- Tré milli 200 og 300 cm hefur bara 5 greinakransa.
Skemmdir
- Auk framangreindra galla mega tré hafa svipaða galla eins og tré í A-flokki en þau verða að líta sæmilega út.
- Ekki mega vera dauðar eða brotnar greinar.
- Ekki má vera gras, mosi, mold eða skemmdur börkur.
- Barrið á að vera jafnt dreift og full þroskað.
- Barrið má ekki bera merki eftir skordýr.
- Formun og klipping á söluári skilgreinist sem galli.
- Tréð má ekki liggja úti á foldinni lengur en 15 daga eftir högg.