Skip to main content

Góð ráð til að íslenska jólatréð standi ferskt

Með því að velja íslenskt jólatré styrkir þú skógræktarstarfið á Íslandi. Fyrir hvert selt jólatré geta skógræktarfélögin gróðursett 30- 40 ný tré í útivistarskóga sína, sem opnir eru allan ársins hring. Engin eiturefni eru notuð við ræktun jólatrjáa á Íslandi.

Til að tryggja að tréð standi ferskt yfir jólin þarf að fylgja eftirfarandi leiðbeiningum.

A. Geymið jólatréð á köldum stað fyrir uppsetningu, til dæmis á svölum eða í bílskúr.
B. Ágætt er að geyma það með fótinn í vatni.
C. Þegar tréð er sett upp á að saga sneið neðan af bolnum, ca. 2-5 cm þykka.
D. Hafið tréð í rúmgóðum fæti og gætið þess að ávallt sé nóg vatn í honum þannig að þorni aldrei alveg á trénu.
E. Fyrsta vatnsáfyllingin má gjarna vera með heitu vatni.

Að notkun lokinni á að skila trénu í endurvinnslu.

hvadgera