Jólatrjáasala Skógræktarfélags Mosfellsbæjar verður í Hamrahlíð við Vesturlandsveg frá 10. desember til 23. desember. Opnunarhátíð verður 10. des. kl. 13.
Opið verður um helgar kl. 10.00 – 16.00
Vikuna 12. – 16. des.verður opið kl. 14.00 – 17.00
Dagana 19. des – 22. des. verður opið 12.00 – 17.00
Á Þorláksmessu verður opið kl. 10.00 – 16.00
Pottatré – greni og fura komin í sölu. Einnig furutoppar ( tröpputré ) Sími 867-2516
Getum tekið á móti litlum hópum á öðrum tímum eða öðrum stað ef óskað er. Panta verður fyrir hópa fyrirfram.
Hægt er að fara í skóginn og saga sjálf tré en einnig verða til söguð tré á staðnum.
Til sölu eru:
– Lifandi tré í pottum (0,80 -1,5 m), greni og fura
– Topptré á tréstalli
– Höggvin tré í öllum stærðum, greni og fura
– Útlitsgölluð tré (veggtré)
– Gjafabréf
Nánari upplýsingar í síma 867-2516 og á skogmos@skogmos.is
Einnig á heimasíðu félagsins (www.skogmos.is) og Facebook síðu.