Skip to main content

Skógarjóga á Alþjóðlegum degi skóga

21mar18:00Skógarjóga á Alþjóðlegum degi skóga

Nánari upplýsingar um viðburð

Andaðu djúpt og njóttu alls þess sem skógurinn hefur upp á að bjóða!

Þriðjudagurinn 21. mars er alþjóðlegur dagur skóga hjá Sameinuðu þjóðunum. Þema dagsins árið 2023 er „Skógar og heilbrigði“.

Af því tilefni bjóða Skógræktarfélag Íslands og Grasagarður Reykjavíkur gestum og gangandi í skógarjóga í fallegum lundi í Grasagarðinum undir leiðsögn Ragnheiðar Ýrar Grétarsdóttur jógakennara. Að skógarjóganu loknu verður boðið upp á te í garðskála Grasagarðsins.

Mæting er við aðalinngang Grasagarðsins.

Þátttaka er ókeypis og öll velkomin!

Sjá meira

Tímasetning

(Þriðjudagur) 18:00(GMT+00:00)