Skip to main content

Garðaganga Garðyrkjufélags Íslands: Rósagarðurinn og trjásafnið í Höfðaskógi

Með 26. ágúst, 2009febrúar 13th, 2019Skógargöngur

Næsta garðaganga Garðyrkjufélagsins verður miðvikudaginn 26. ágúst, en þá verður gengið um rósagarðinn  og trjásafnið í Höfðaskógi.

Trjásafnið í Höfðaskógi var formlega opnað á 50 ára afmæli Skógræktarfélags Hafnarfjarðar árið 1996. Í safninu eru nú á þriðja hundrað tegundir trjáa og runna. Rósagarðurinn, sem er samstarfsverkefni Rósaklúbbs GÍ og Skógræktarfélags Hafnarfjarðar, var formlega vígður árið 2005. Þar eru nú á annað hundrað yrki af harðgerðum rósum. Leiðsögumaður verður  Steinar Björgvinsson. Mæting er í bækistöðvum Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Gróðrarstöðvarinnar Þallar við Kaldárselsveg í Hafnarfirði kl. 20.00.

 skgargangash2608
Steinar Björgvinsson við eina rósina í Rósagarðinum í Höfðaskógi (Mynd: Sk. Hafnarfjarðar).