Skip to main content

Skógardagur Skógræktarfélagsins Merkur

Með 7. ágúst, 2010febrúar 13th, 2019Fréttir frá skógræktarfélögum

Skógardagur skógræktarfélagsins Merkur verður haldinn í skógarreit félagsins að Hnausafit í Meðallandi laugardaginn 7. ágúst kl. 13:30. Mæting á bæjarhlaðinu á Syðri-Fljótum, þar sem við leggjum fólksbílum og sameinumst í jeppa í reitinn.

Við skoðum reitinn, grillum og gleðjumst saman á góðum degi. Guðmundur Óli mætir með harmóníkuna.

Allir áhugasamir hjartanlega velkomnir.

Skógræktarfélagið Mörk, Kirkjubæjarklaustri.