Skip to main content

Skógræktarfélagið Mörk: Skógardagur

Með 29. ágúst, 2015febrúar 13th, 2019Fréttir frá skógræktarfélögum

Skógardagur skógræktarfélagsins Merkur verður haldinn í Seglbúðum laugardaginn 29. ágúst kl. 13:30.

Mæting er við Seglbúðir þar sem byrjað verður á að skoða skógarreitinn þar, undir leiðsögn Guðrúnar og Jóns á Seglbúðum. Að því loknu verður farið að heimili þeirra, þar sem Skógræktarfélagið mun bjóða upp á hressingu í garðinum.

Garðurinn í Seglbúðum er með þeim elstu í Skaftárhreppi. Þar má sjá nokkur aldargömul tré.

Allir áhugasamir hjartanlega velkomnir.

Njótum útivistar !

Skógræktarfélagið Mörk,
Kirkjubæjarklaustri.