Skip to main content

Starfsmenn bandaríska sendiráðsins gróðursetja í Brynjudal

Með 29. ágúst, 2014febrúar 13th, 2019Fréttir frá skógræktarfélögum

Þann 29. ágúst kom hópur frá bandaríska sendiráðinu í heimsókn í skóg Skógræktarfélags Íslands í Brynjudal í Hvalfirði. Var tilgangur ferðarinnar að láta gott af sér leiða og styðja við Skógræktarfélagið með gróðursetningu. Setti hópurinn niður 400 plöntur að þessu sinni. Heimsóknin heppnaðist mjög vel og er fullur hugur til að endurtaka viðburðinn síðar.

Myndir frá heimsókninni má skoða á Facebook-síðu félagsins (hér).