Skip to main content

Sveppaganga hjá Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar

Með 14. september, 2017febrúar 13th, 2019Skógargöngur

Helena Marta Stefánsdóttir náttúrufræðingur verður leiðsögumaður í sveppagöngu á vegum Skógræktarfélags Hafnarfjarðar fimmtudaginn 14. september kl. 18:00. Lagt verður af stað frá vesturenda Hvaleyrarvatns þar sem hús bæjarins stóð áður. 

Takið með ykkur körfu, hníf og sveppakver ef þið eigið. Allir velkomnir. 

Nánari upplýsingar í síma 555-6455 eða 894-1268 (Steinar).