Skip to main content
Flokkur

Ýmislegt

Skrúður í Dýrafirði 100 ára – afmælishátíð 8. ágúst

Með Ýmislegt

Garðurinn Skrúður í Dýrafirði á aldarafmæli þann 7. ágúst  næst komandi. Af því tilefni er verður efnt til sérstakrar hátíðar í garðinum frá kl. 14-17 á laugardaginn, 8. ágúst. Hátíðin er öllum opin og verður fjölbreytt dagskrá í anda þeirra hugmynda og gilda sem garðurinn hefur staðið fyrir í 100 ár. 

Skrúður er einn elsti skrúðgarður landsins og var upphaflega komið á fót af séra Sigtryggi Guðlaugssyni, prófasti að Núpi, sem kennslugarði fyrir nemendur í ungmennaskólanum að Núpi. Garðinn átti að nýta til kennslu í jurtafræði og garðrækt, sem og til að koma nemendum á bragðið með neyslu garðávaxta, en séra Sigtryggur lagði mikla áherslu á mikilvægi ræktunar garðjurta til fæðubótar og heilbrigðis.  Var hann í þeim málum að vissu leyti á undan sinni samtíð. 

Auk gróðursins er margt forvitnilegt að sjá í garðinum. Reistur hefur verið þar minnisvarði um þau hjónin séra Sigtrygg og Hjaltlínu Guðjónsdóttur á Núpi og í garðinum eru kjálkabein af einni stærstu steypireyði sem fönguð hefur verið við Ísland.  Einstök staðsetning Skrúðs, í náttúru snarbrattra fjallshlíða Dýrafjarðar, kemur einnig mörgum á óvart.  Það var líka ætlun stofnandans á sínum tíma að sýna hvað hægt væri að rækta í hrjóstrugum jarðvegi við þessar aðstæður.

Ný síða Skógræktarfélags Íslands

Með Ýmislegt

Ný og uppfærð heimasíða Skógræktarfélags Íslands er komin í loftið.

Það var sannarlega kominn tími á yfirhalningu, en engar meiriháttar breytingar hafa verið gerðar á útliti eða uppbyggingu síðunni frá því að hún var fyrst opnuð árið 2000.

 

Markmiðið með breytingunum var að gera útlit og umgjörð síðunnar alla einfaldari og þægilegri í notkun, bæði fyrir notendur og umsjónaraðila. Þótt síðan sjálf sé komin upp er enn verið að vinna í ýmsum viðbótum og uppfærslum á henni, þannig að nýtt efni verður að tínast inn á næstunni.

opnunvefs
Magnús Gunnarsson formaður Skógræktarfélags Íslands og Ragnhildur Freysteinsdóttir, ritstjóri vefsíðunnar, opna nýju síðuna formlega.

 

Vonum við að notendum líki nýja útlitið vel!