Skip to main content
All Posts By

ragnhildur

Barnamenningarhátíð í Grasagarðinum: Hæ litla fræ!

Með Fréttir

Grasagarður Reykjavíkur býður fjölskyldum í plöntusmiðju á barnamenningarhátíð!
Þriðjudaginn 18. apríl kl. 17-18 býðst börnum og fjölskyldum þeirra að koma í garðskála Grasagarðsins og læra að sá fyrir sumarblómum og matjurtum. Þá læra krakkarnir (og fullorðnir líka) að dreifplanta eða prikla smáplöntum. Þátttakendur fá svo að taka plönturnar sínar með heim í lok viðburðar.
Þátttaka er ókeypis og öll velkomin!

Áhugaverð námskeið hjá Garðyrkjuskólanum – Fsu

Með Fréttir

Tvö áhugaverð námskeið fyrir skógræktarfólk eru fyrirhuguð hjá Garðyrkjuskólanum nú í maí. Annars vegar er um að ræða námskeið þann 4. maí um áhættumat trjáa, en með hlýnandi veðri og hækkandi trjágróðri í þéttbýli er orðið mikilvægt að geta lagt mat á ástand trjáa og möguleg hættumerki. Þetta dagsnámskeið hentar öllum þeim sem vinna við trjáklippingar, ráðgjöf, framkvæmdir í og við græn svæði og önnur störf tengd umhirðu trjágróðurs.

Hins vegar er í boð námskeið í trjáfellingum og grisjun með keðjusög og er það haldið í Hveragerði. Námskeiðið er öllum opið og hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa notað keðjusagir, en vilja bæta við sig. Námskeiðið fer fram dagana 4.-6. maí.

Nánari upplýsingar um námskeiðin og skráningu má finna á heimasíðu Garðyrkjuskólans: https://www.fsu.is/is/namid/gardyrkjuskolinn-reykjum/gardyrkjuskolinn-namskeid

Skógræktarfélag Húsavíkur

Með Skógræktarfélög

Skógræktarfélag Húsavíkur var stofnað árið 1943. Félagið var áður deild innan Skógræktarfélags S-Þingeyinga en er sér félag frá og með 2022. Formaður er Þröstur Eysteinsson.

Hafið samband:
Þröstur Eysteinsson
Höfða
701 Egilsstaðir

Sími (heima):  471 1724
Netfang: dr.larix (hjá) gmail.com

Tilnefning til Garðyrkjuverðlauna 2023

Með Fréttir

Garðyrkjuverðlaunin verða veitt samkvæmt venju á sumardaginn fyrsta þann  20. apríl nk. við hátíðlega athöfn á opnu húsi í Garðyrkjuskóla FSu á Reykjum. Með verðlaunaveitingunni vill  Garðyrkjuskólinn – Fjölbrautaskóli Suðurlands heiðra þá sem staðið hafa sig vel í að vinna að framgangi garðyrkjunnar á ýmsum sviðum hennar. Sú hefð hefur skapast að afhenda verðlaun í þremur flokkum en fleiri en einn geta fengið verðlaun í hverjum flokki, það er í höndum dómnefndar í hvert skipti að ákveða það.

Dómnefndina skipa eftirtaldir starfsmenn skólans: Björgvin Örn Eggertsson, brautarstjóri skóga og náttúru, Guðríður Helgadóttir, fagstjóri garðyrkjunáms og Guðrún Þórðardóttir, bókasafnsfræðingur.

Það er metnaður skólans að sem flestir komi að því að velja þá aðila sem heiðraðir eru hverju sinni. Óskað er eftir tilnefningum frá öllum þeim sem láta sig málið varða í þessa þrjá flokka. Hverri tilnefningu þarf að fylgja örstutt röksemdafærsla fyrir því af hverju viðkomandi á verðlaun skilið.

Verðlaunaflokkarnir eru eftirfarandi:

  1. Heiðursverðlaun garðyrkjunnar.  Hér er óskað eftir tilnefningum um einstaklinga sem skarað hafa fram úr á sviði garðyrkjunnar að mati atvinnulífsins og skólans.
  2. Verknámsstaður ársins.  Hér er óskað eftir að tilnefndur verði verknámsstaður ársins 2023, staður sem hefur staðið sig sérlega vel við að leiðbeina nemendum skólans í verknámi.
  3. Hvatningarverðlaun garðyrkjunnar. Hér er óskað eftir að tilnefndir verði aðilar sem  eru að vinna að athyglisverðum og framsæknum nýjungum í greininni og eiga skilið að fá hvatningu til að halda áfram á sömu braut.

Tilnefningar þurfa að berast skólanum í síðasta lagi mánudaginn 3. apríl 2023 á netfangið  boe@fsu.is

Fræðslu- og aðalfundur Skógræktarfélags Önundarfjarðar

Með Fréttir

Skógræktarfélag Íslands ásamt Skógræktarfélagi Önundarfjarðar boða til fræðslu- og aðalfundur fimmtudaginn 30. mars kl. 20:00, á Bryggjukaffi, Flateyri.

Allir eru velkomnir.

Dagskrá
20:00 Setning fundarins
Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands (SÍ)
20:10–20:30 Hefðbundin aðalfundarstörf
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir

20:30–21:00 Á meðal trjánna – hugleiðingar um útivistarskóga
Jón Ásgeir Jónsson, skógfræðingur SÍ

21:00 Kaffihlé

21:20–22:00 Mikilvægi skógræktarfélaga, samningar, Yrkjusjóðurinn o.fl.
Þórveig Jóhannsdóttir, skógfræðingur SÍ
Elisabeth Bernard, mannfræðingur SÍ
Ragnhildur Freysteinsdóttir, umhverfisfræðingur SÍ

Fyrirspurnir og umræður

 

Guided walk through Kálfamói

Með News

„Forests and Health” is the theme for the International Day of Forests 2023. For this reason, the Reykjavík Forestry Association is offering an educational walk through Kálfamói by Keldur in Grafarvogur, on Tuesday, March 21st, at 18:00, starting point in the parking lot near the main entrance.

Kálfamó is a remarkable forest in the urban area with rich and varied vegetation. The first trees were planted in 1947, when Jóhann Pálsson, who later became the city’s horticultural manager, used his vacation money to buy three sitka spruce plants. He was only 15 years old, but he would do well in the following decades. Over the years he added an astonishing array of different species of trees, shrubs, and other plants to make for a beautiful site. Kálfamói includes tall trees, ornate bushes, and beautiful plants of berries that please both people and birds.

The area of Keldur is being planned for a residential area and with a positive emphasis is on respecting and using the area’s natural quality for future development. Kálfamói is a resource for the future  people in the neighbourhood as the positive impact of green areas on public health is unambiguous.

The walk will be short and easy and everybody is welcome

For more information, see the Reykjavík Forestry Association’s website: www.heidmork.is.

Evergreen Echo – The Barabars Boy’s Choir

Með News

To mark the International Day of Forests on Tuesday, March 21, the Borgarfjörður Forestry Association is planning to launch a series of concerts under the heading Evergreen Echo.

Tuesday night’s concert will be at the campfire area in Einkunnir, consisting of the sweet tones of the Boy’s choir Barabars. Hot cocoa on offer.

Evergreen forest groves have a special sound reflection, so the series is entitled: Evergreen Echo.  The aim is to hold a concert in the coniferous forests in Borgarfjörður once a month for the next year, with a a diverse group of musicians and each concert will be in the spirit of the season and season of that month.

There will be no fixed day a week or date a month, but each concert will be advertised individually and will be arranged as appropriate.

The aim is to have free concerts, but people can make voluntary contributions to the Borgarfjörður Forestry Association, which is organizing the concert and its setting, as well as being responsible for the general care of various forest plots in Borgarfjörður in the interests of public and public health.

Everybody welcome!

Bergmál Barrskóganna -Drengjakór Barabars

Með Fréttir
Alþjóðlegur dagur skóga er þriðjudaginn 21.mars 2023. Af því tilefni ætlar Skógræktarfélag Borgarfjarðar að ýta úr vör tónleikaröð undir yfirskriftinni: Bergmál Barrskóganna.
Tónleikarnir á þriðjudagskvöldið verða í varðeldarlundinum í Einkunnum, boðið verður upp á heitt kakó og ljúfa tóna Drengjakórs Barabars.
Barrskógarlundir hafa sérstakt hljóðendurkast, því fær tónleikaröðin heitið: Bergmál Barrskóganna. Stefnan er að halda tónleika í barrtrjáalundum hér í Borgarfirði einu sinni í mánuði næsta árið.
Ósk okkar er að fá fjölbreyttan hóp tónlistarfólks og stemning hverja tónleika verði í anda árstíðar og tíðarfars þess mánaðar.
Ekki verður um að ræða fastan dag í viku eða dagsetningu í mánuði, heldur verði hverjir tónleikar auglýstir fyrir sig og settir upp eftir því sem best hentar hverju sinni.
Stefnt er að hafa frítt á alla tónleika, en fólki er bent á frjáls framlög til Skógræktarfélags Borgarfjarðar sem stendur að skipulagi tónleikanna og umgjörð, ásamt því sinnir Skógræktarfélagið almennri umhirðu ýmissa skógarreita í Borgarfirði í þágu almennings og lýðheilsu.
Allir velkomnir!