Skrifstofa Skógræktarfélags Íslands verður lokuð eftir kl. 14 fimmtudaginn 16. september og föstudaginn 17. september vegna útivinnu starfsfólks. Mætum hress til baka á mánudaginn!
Hinn árlegi sjálfboðaliðadagur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður laugardaginn 18. september 2021 kl. 11.00. Hist verður í Hamranesi á móts við flugmódelvöllinn við Hvaleyrarvatnsveg skammt fyrir vestan Hvaleyrarvatn (leiðin út á Vellina). Skóflur og plöntur á staðnum. Félagið býður upp á hressingu um kl. 13.00 í Þöll að gróðursetningu lokinni. Allir velkomnir. Nánari upplýsingar í síma 849-6846 (Árni) og 894-1268 (Steinar).
Skógræktarfélag Íslands fékk árið 2020 styrk úr styrktarsjóði Alcoa (Alcoa Foundation) til gróðursetningar tíu þúsund plantna á Eskifirði og Úlfljótsvatni árið 2021. Er það verkefni framhald fyrri verkefna sem unnið var fyrir styrki úr samstarfi Alcoa og American Forests.
Sjálfboðaliðahópur Skógræktarfélags Íslands, ásamt verkstjóra, var viku á Eskifirði nú í byrjun september og gróðursetti um helming plantnanna, ásamt því að sinna öðrum verkum fyrir félagið á Eskifirði. Hinn helmingurinn verður svo settur niður á Úlfljótsvatni.
Hópurinn frá Skógræktarfélagi Íslands.
Skrifstofa Skógræktarfélags Íslands verður lokuð fimmtudaginn 26. ágúst þar sem allir starfsmenn verða í útivinnu. Mætum aftur á skrifstofuna á föstudagsmorgun.
Skógræktarfélag Íslands, í samstarfi við Lambhaga, útnefnir hegg (Prunus padus) í gömlu gróðrarstöðinni við Rauðavatn í Reykjavík, sem Tré ársins 2021, við hátíðlega athöfn miðvikudaginn 25. ágúst kl. 16:00.
Dagskrá:
1. Setning dagskrár
Tónlist: Erna Ómarsdóttir og Rakel Björt Helgadóttir
2. Ávarp – Jónatan Garðarsson, formaður Skógræktarfélags Íslands
3. Afhending á viðurkenningarskjali. Dagur Eggertsson borgarstjóri veitir því viðtöku
4. Ávarp – Jóhannes Benediktsson, formaður Skógræktarfélags Reykjavíkur
5. Mælingar á trénu
6. Veitingar í boði Lambhaga
Allir velkomnir!
Skógræktarfélag Íslands útnefnir árlega Tré ársins. Er útnefningunni ætlað að beina sjónum almennings að því gróskumikla starfi sem unnið er um land allt í trjá- og skógrækt og benda á menningarlegt gildi einstakra trjáa.
Nýlega undirrituðu Arion banki og Skógræktarfélag Íslands samning vegna áframhaldandi stuðnings bankans við félagið. Styrkurinn, sem er til þriggja ára, verður nýttur til að fjármagna verkefnið Skógarvist, skógargátt og lýðheilsa, sem er ætlað að hvetja til útivistar og bættrar lýðheilsu. Einnig nýtist styrkurinn í innleiðingu á forritinu Avenza sem ætlað er að halda utan um kortlagningu skógræktar með stafrænum hætti og þar með ná betri yfirsýn yfir útbreiðslu nýrra skóga og bindingu þeirra.
Arion banki hefur um árabil styrkt Skógræktarfélag Íslands og á stuðningur bankans sér langa forsögu sem nær allt aftur til þess er bankinn var Búnaðarbanki Íslands. Þess má til gamans geta að Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands árið 2021 verður haldinn í fundarsal bankans að Borgartúni 19, en vegna Covid-19 var ekki stætt á því að halda aðalfund með hefðbundnu sniði.
Arion banki hefur sett sér metnaðarfull markmið um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og á að auki í samstarfi við Kolvið varðandi mótvægisaðgerðir. Kolviður gróðursetti um 4.700 tré til að vega upp á móti losun bankans á árinu 2020 vegna reksturs, þ.e. húsnæðis og bíla, en einnig vegna flugferða og leigubílaferða, sorps og samgangna starfsfólks til og frá vinnu.
Brynjólfur Jónsson, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands, Hlédís Sigurðardóttir, verkefnastjóri samfélagsábyrgðar og Anna Sigríður Kristjánsdóttir, aðstoðarmaður bankastjóra, við undirritun samningsins.
Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands var fyrirhugaður í Mosfellsbæ dagana 20. – 22. ágúst 2021, með Skógræktarfélag Mosfellsbæjar sem gestgjafa. Vegna samkomutakmarkana hefur verið ákveðið að fresta fundinum. Upplýsingar varðandi fundartíma og fyrirkomulag fundarins verður auglýst síðar – sjá nánar á síðu fundar: https://www.skog.is/adalfundur-2021/
Líf í lundi er útivistar- og fjölskyldudagur í skógum landsins í kringum Jónsmessuna og er markmið hans að fá fólk til að heimsækja skóga landsins og njóta þess sem þeir hafa upp á að bjóða. Undanfarið ár hefur sannarlega sýnt fram á mikilvægi skóga, en skóglendi hérlendis hafa líklega sjaldan verið notuð jafn mikið til útivistar og heilsubótar og nú.
Í ár var boðið upp á viðburði undir hatti Lífs í lundi í fjórða sinn, en alls voru fjórtán viðburðir í boði, víða um land. Flestir viðburðirnir voru haldnir laugardaginn 26. júní og gerðu veðurguðirnir sitt til að gera daginn ánægjulegan, en einmuna blíða var.
Á Facebook-síðu Líf í lundi má sjá flottar myndir frá hinum ýmsu viðburðum sem haldnir voru (https://www.facebook.com/lifilundi).
Skógræktarfélag Reykjavíkur, í samstarfi við Ferðafélag Íslands, stendur nú í sumar fyrir fjórum skógargöngum og fór sú fyrsta fram þann 17. júní í Heiðmörk. Gönguna leiddu Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands og Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur.
Í göngunni var meðal annars hugað að varpstæði flórgoða við Elliðavatn, en starfsmenn Skógræktarfélags Reykjavíkur hafa undanfarin ár dregið greinar og sprek að vatninu, sem flórgoðaparinu fellur vel í geð. Einnig var skoðuð efnisvinnsla félagsins og sagt frá umhirðu skógarins, stígagerð, vatnsvernd og fleiru.
Fylgist með heimasíðu Skógræktarfélags Reykjavíkur – www.heidmork.is og á Facebook-síðu félagsins – https://www.facebook.com/heidmorkin/ – til að fá upplýsingar um næstu göngur.
Kolviður hefur undirritað samstarfssamning við Lionsklúbb Keflavíkur og Skógræktarfélag Suðurnesja. Samstarfið lýtur að því að Lionsklúbbur Keflavíkur mun hvetja fyrirtæki og einstaklinga á Suðurnesjum til úrbóta í loftslagsmálum með því að kolefnisbinda hjá Kolviði og mun Lionsklúbburinn fá hlutfall af þeim viðskiptum sem til koma vegna hvatningar þeirra. Mun Lionsklúbburinn svo nýta hluta þeirrar upphæðar sem í þeirra hlut kemur til að styðja Skógræktarfélag Suðurnesja til ræktunar á yndisskógi við Seltjörn.
Boðið verður upp á þann möguleika á heimasíðu Kolviðar að merkja kaup á kolefnisbindingu Lionsklúbbnum og er sá möguleiki í vinnslu.
Frá undirritun samningsins: Rafn Benediktsson (sitjandi t.v.) frá Lionsklúbbi Keflavíkur og Berglind Ásgeirsdóttir (sitjandi t.h.) frá Skógræktarfélagi Suðurnesja setja nöfn sín á samninginn, ásamt Reyni Kristinssyni, formanni Kolviðar (lengst til hægri). Mynd: BJ
Nýlegar athugasemdir